Næring.com

  • Heim
  • Þjónusta
    • Námskeið
    • Næringarráðgjöf
    • Handbækur
    • Matarprógram
    • Fyrir vinnustaði
  • Næring
    • Heilsa
    • Matur og næringarefni
    • Uppskriftir
    • Blogg
  • Upplýsingar
  • Reiknivélar
    • Líkamsþyngdarstuðull (BMI)
    • Grunnefnaskipti (BMR)
    • Þyngdartap
    • Hlutfall mittis af hæð
    • Hlutfall mittis af mjöðm
    • Næringarefni
    • Prótein reiknivél
  • Hafðu samband
Næringarráðgjöf

Matarprógram

Vikuprógram sem er hannað til að hjálpa þér að borða reglulega og næringarríkt án þess að skipuleggja allt sjálf. Veldu tilbúna almenna prógrammið eða prógram sniðið sérstaklega að þér.

Sérsniðið vikuprógram eftir Hrund Valgeirsdóttur næringarfræðing
Sérsniðið matarprógram

Vikuprógram sniðið að þér: þínum smekk, markmiðum og daglegu lífi.

  • Persónulegt vikuprógram byggt á þínum óskum og markmiðum
  • Skammtastærðir miðaðar við þig
  • Uppskriftir að fjölbreyttum máltíðum með einföldum eldunarleiðbeiningum
  • Þú færð sent skjal sem þú notar í símanum, tölvunni eða prentar út
Afhendingartími: 1-2 virkir dagar
Verð: 11.997 kr.
Panta
Almennt viku matarprógram eftir Hrund Valgeirsdóttur næringarfræðing
Almennt matarprógram

Tilbúið vikuprógram, hannað fyrir meðal konu sem vill léttast.

  • 5 máltíðir á dag í eina viku
  • Útreiknaðar hitaeiningar fyrir hvern rétt
  • Einfaldar eldunarleiðbeiningar
  • Mynd af hverri máltíð
Afhendingartími: Samstundis (innan 5 mínútna)
Verð: 5.997 kr.
Panta

Ath. Ef þú greiðir með Apple Pay berst staðfestingarpósturinn á það netfang sem skráð er hjá Apple, sem getur verið annað en netfangið sem þú notar venjulega. Ef staðfestingin skilar sér ekki, athugaðu þá það netfang eða sendu mér línu á naering@postur.naering.com.

Meðmæli (sérsniðið matarprógram)

„Þetta er það besta sem ég hef komist í: ekkert nart, ekkert vesen, ekkert hungur, ekkert kvíðakast yfir magni eða matartegundum. Léttist um 1,2 kg, glöð með það."

Linda

„Mér fannst þetta mjög flott og hentaði mér mjög vel. Finnst ekkert vanta. Fann ekki fyrir sætindalöngun og mér leið mjög vel. Á klárlega eftir að halda áfram að nýta mér þetta prógramm."

Alda

„Skammtarnir voru miklu stærri en ég hélt að þeir myndu verða. Ég fann aldrei fyrir svengd en léttist um 600 g eftir vikuna."

Þorbjörg

„Prógrammið var einfalt og ég uppgötvaði að mataræðið þarf ekki að vera flókið til að vera gott."

Sigurósk

„Þá daga sem ég fylgdi því leið mér mjög vel og var nokkuð vel mett... allt var mjög bragðgott. Mæli algerlega með planinu."

Guðbjörg

„Prógrammið var vel uppsett og auðvelt að fara eftir því. Það heldur mér við efnið og ég er síður að stelast í sætindi."

Helga

Árangur er einstaklingsbundinn. Þetta eru dæmi um reynslu þátttakenda.

Algengar spurningar

Almenna prógrammið er tilbúið vikuprógram, hannað fyrir meðal konu sem vill léttast, og þú færð það afhent samstundis (innan 5 mínútna). Sérsniðna prógrammið er byggt sérstaklega fyrir þig, út frá þinni hitaeiningaþörf, þínum smekk, markmiðum og daglegu lífi, með skammtastærðum sem miðast við þig. Þú færð það afhent innan 1-2 virkra daga.

Fyrir konur sem vilja léttast, borða reglulega og næringarríkt án þess að þurfa að skipuleggja allt sjálfar. Þú færð skýrar máltíðir, skammtastærðir og einfaldar leiðbeiningar.

Prógrammið hjálpar þér að borða jafnt yfir daginn með réttum skammtastærðum, sem margar konur finna að styður þyngdarstjórnun. Árangur er einstaklingsbundinn og fer eftir aðstæðum hverrar konu.

Skammtastærðir eru gefnar upp í grömmum og miðast við matinn eins og hann er borinn fram, það er eldaðan. Kornvörur eins og t.d. hrísgrjón fá líka þurrviðmið svo þú veist hvað á að sjóða mikið. Þú mátt fylgja tölunum nákvæmlega eða nota þær sem viðmið; margar vigta fyrstu dagana og fá svo tilfinningu fyrir stærðunum.

Þú færð prógrammið sem rafrænt skjal sent með tölvupósti sem þú getur notað beint í tölvunni, símanum eða prentað út. Almenna prógrammið færðu samstundis (innan 5 mínútna) eftir pöntun en sérsniðna innan 1-2 virkra daga.

Já, í sérsniðna prógramminu. Í skráningunni segirðu mér hvað þú borðar ekki, hvort sem það er ofnæmi, óþol eða einfaldlega matur sem þér finnst vondur, og hann kemur þá hvergi fyrir í prógramminu þínu. Þú getur líka sagt mér hvaða holli matur er í uppáhaldi og prógrammið tekur mið af því. Almenna prógrammið er eitt fast prógram og tekur ekki tillit til ofnæmis.

Já. Í skráningunni fyrir sérsniðna prógrammið velurðu hvernig hádegið þitt er í raun: þú getur valið að nýta afganga frá kvöldmatnum sem nesti, nestisvænar máltíðir sem þarf ekki að elda á staðnum, eða svigrúm fyrir mötuneyti í vinnunni. Prógrammið er byggt utan um þitt daglega líf, ekki öfugt.

Nei. Kvöldmaturinn í prógramminu er venjulegur matur, til dæmis kjúklingur, fiskur og hakkréttir, sem öll fjölskyldan getur borðað. Þín skammtastærð er gefin upp fyrir þig og hinir taka bara sitt magn. Ef þú velur afgangaleiðina eldarðu einu sinni fyrir alla og átt nestið þitt tilbúið daginn eftir.

Prógrammið er líka hugsað sem hugmyndabanki. Þú mátt skipta máltíð út fyrir sambærilega þegar þér hentar. Konur hafa einmitt nefnt að þetta frelsi hjálpi þeim að prófa nýtt án pressu.